15. júní - Innkaupalistar
Hér má finna DRÖG að innkaupalistum fyrir næsta skólaár.  Skólinn sér áfram um innkaup fyrir 1. - 4. bekk eins og verið hefur og er efnisgjaldið óbreytt, eða kr 2.000.  Foreldrar eru beðnir um að leggja inn fyrir 15. ágúst eða koma pening í skólann í byrjun ágúst. Reikn. nr. er 1145-26-468  kt. 150274-3709 (Eig. Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir).  Vinsamlegast setjið nafn barns í skýringu.

1. bekkur    2. bekkur    3. bekkur    4. bekkur    5. bekkur   
6. bekkur    7. bekkur    8. bekkur    9. bekkur    10. bekkur

4. júní - útivistardagur og skólaslit 5. júní
Á morgun er útivistardagur við skólann fram að hádegi og nemendur fá grillaðar pylsur. Síðdegis eru svo skólaslit.
kl. 13:30 hjá nemendum 1.-4. bekkjar
kl. 14:00 hjá nemendum 6. og 7. bekkjar
kl. 17:00  hjá nemendum 8. - 10. bekkjar

3. júní - útivist og hreyfing
Útivist og hreyfing var í hávegum höfð hjá nemendum í dag.  9. bekkingar fóru í Kjarnaskóg, 8. bekkingar í Vaglaskóg, 6. bekkingar fóru í heimsókn til kennara út fyrir bæjarmörkin, 5. bekkingar heimsóttu Kexsmiðjuna og aðrar voru hér úti við í kringum skólann - sumir frekar blautir seinni partinn :-)
Á morgun verður svo ratleikur og sundferð í Þelamörk.  Fínir útivistardagar !

29. maí - Síðasta Tengja skólaársins
Tengja var send heim í dag.  Hana má einnig skoða hér.

29. maí - Skólaferðalag 10. bekkjar
Hér er að finna upplýsingablað varðandi skólaferðalag 10. bekkjar.

29. maí - Vinabekkir og grill
Í gær höfðu bekkjarfulltrúar 1. bekkjar frumkvæðið að því að bjóða vinunum í 8. bekk í leiki og veitingar.  Foreldrar bökuðu skúffukökur og muffins og eftir útileiki settust stórir og litlir saman og gæddu sér á veitingum.  Skemmtilegt framtak sem foreldrar fá bestu þakkir fyrir.  Í dag mættu svo nokkrar mæður úr 4. bekk og tóku þátt í grillveislu með nemendum og kennurum þess bekkjar.  Takk fyrir komuna og hjálpina !

27. maí - Heimsóknir til nemenda
Síðustu vikuna hefur umsjónarkennari verðandi 1. bekkjar ásamt stuðningsfulltrúa heimsótt nemendur og fjölskyldur þeirra til að bjóða þau velkomin í skólann.  Í dag kl 17:00 koma nemendurnir ásamt foreldrum sínum í heimsókn til okkar í skólann.  Þar fá nemendur að upplifa kennslustund í skólastofunni sinni meðan foreldrar spjalla við skólastjórnendur. 

25. maí - Skóladagatal 2009-2010
Skóladagatal næsta skólaárs er komið á síðuna undir flipanum Skóladagatal hér til hliðar.

25. maí - 10. bekkingar á ferð og flugi
Í síðustu viku luku 10. bekkingar skólaprófum sínum.  Að þvi loknu fóru þeir í óvissuferð með foreldrum og gistu eina nótt að Stórutjörnum í Ljósavatnsskarði. Þá tók við starfskynning og í dag eru 10. bekkingar í Rósenborg þar sem þeir fá forvarnafræðslu um geðheilbrigði, kynferðislegt ofbeldi og tölvunotkun.  Á morgun fá 10. bekkingar ýmsa góða gesti í heimsókn og í lok dagsins er svo síðasta átakið í fjáröflun fyrir skólaferðalag en þá verða steiktar kleinur með foreldrum og starfsfólki skólans.

18. maí - 5. bekkur með glæsilega hatta
Þegar litið var inn í stofu 5. bekkjar á föstudaginn mátti sjá nemendur skarta hinum glæsilegustu höfuðfötum, litskrúðugum og fjölbreytilegum að allri gerð.  Þetta voru hattar sem krakkarnir höfðu búið til hjá Gígju í myndmenntatímum og voru þeir hver öðrum glæsilegri.  Í tilefni dagsins voru allir drifnir út á stétt og tekin mynd af herlegheitunum.

15. maí - sýning í Boxinu opnar laugardaginn 16. maí kl. 15:00
Nemendur Oddeyrarskóla og Brekkuskóla hafa unnið sérstaklega fyrir þessa sýningu í smíðatímunum sínum.  Á sýningunni er lögð áhersla á að fullorðnir og börn vinni saman, hægt er að vinna verk á sýningunni eða halda áfram með verk og þróa þau.  Umsjónarmenn eru Brynhildur  Kristinsdóttir, Joris Redymaker og Þórarinn Blöndal.

14. maí - nemendur á faraldsfæti
Þessa dagana eru nemendur á faraldsfæti í góða veðrinu.  Í gær fór valgreinahópur úr íþróttum í hjóltúr og hjóluðu krakkarnir litla Eyjafjarðarhringinn. Nemendur 6. bekkjar eru nú í Kiðagili í Bárðardal og á morgun fara vinabekkirnir í 1. og 8. bekk í gönguferð, ásamt með 7. bekk og verðandi nemendum 1. bekkjar næsta haust.  Ekki amalegt að vera úti við þessa dagana J

9. maí - Foreldraráð
Ný fundargerð foreldraráðs er komin á heimasíðuna undir liðnum Foreldrafélag.

8. maí - sameiginleg tónlistarstund 2. bekkinga í bænum
Í gær hittust nemendur Lundarskóla, Brekkuskóla, Oddeyrarskóla og úr grunnskólanum í Hrísey í Brekkuskóla.  Þar spiluðu þau saman og hvert fyrir annað á flautur, sungu og tóku jafnvel dansspor.  Skemmtileg stund sem tókst afar vel  J

7. maí - SAFT
SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, vakningarátak um örugga tækninotkun
barna og unglinga á Íslandi, hefur hafið undirbúning að stofnun ungmennaráðs.  Fréttatilkynning þess efnis birtist hér.

6. maí - forvarnir og umferðaröryggi
Í gær og í dag hafa nemendur 6. og 10. bekkjar fengið fræðslu um umferðaröryggismál á vegum Sjóvá- Forvarnahúss.  Nemendur 6. bekkjar fóru á hjólunum sínum og þau voru yfirfarin og skoðuð og krakkarnir frædd um notkun hjálma og öryggisbúnaðar.  Í morgun fengu 10. bekkingar fræðslu um ökupróf og ábyrgð og skyldur ökumanna.  Allir fengu að fara í "veltibíl" sem líkir eftir bílveltu á 7 km hraða og eins að finna það hvernig öryggisbelti bjarga við högg. 
Nauðsynleg fræðsla sem nemendur höfðu bæði gagn og gaman af.

1. maí - Alþjóðlegur baráttudagur verkamanna
Árið 1889 var samþykkt að gera 1. maí að alþjóðlegum baráttudegi verkamanna.  Fyrstu kröfugöngurnar erlendis voru farnar árið 1890 en fyrsta kröfuganga á Íslandi var farin í Reykjavík 1923.
1. maí er einnig kenndur við heilaga Valborgu, sem var ensk prinsessa, trúboði og abbadís í Þýskalandi.  Í Skandinavíu var Valborgarmessa talin fyrsti dagur sumars.

30. apríl - Bókaverðlaun barnanna 2009
Almenningsbókasöfn landsins hafa undanfarin ár veitt verðlaun fyrir tvær barna - og unglingabækur, aðra frumsamda og hina þýdda.  Um fimmþúsund börn á öllu landinu tóku nú þátt í valinu.  Nemendur í 1.-6. bekk Oddeyrarskóla tóku þátt nú eins og undanfarin ár.
     Kristín Helga Gunnarsdóttir hlaut verðlaunin fyrir bók sína Fíasól er flottust og Guðni Kolbeinsson hlaut verðlaun fyrir þýðingu sína á Skúla skelfi.
     Einn nemandi úr hverjm skóla fær auk þess bók að gjöf fyrir þátttökuna og var það Iníana Líf Gunnlaugsdóttir í 6. bekk sem var sú heppna að þessu sinni.

29. apríl - 1. maí hlaup UFA
Að venju verður 1. maí hlaup UFA núna á föstudaginn.  Við hvetjum nemendur til að taka þátt í hollri útiveru og skemmtilegri keppni þar sem þátttaka og góður félagsskapur skiptir mestu máli.

28. apríl - Stelpurnar klikka ekki !
Félagsmiðstöðvarnar í bænum héldu nú í annað sinn Hönnunar - og listsköpunarkeppni undir nafninu "Furðuverk".  Keppnin fór fram í Ketilhúsinu 25. apríl og þemað að þessu sinni var "endurvinnsla".  Þær Hildur María, Katrín og Vaka í 9. bekk unnu keppnina eins og þær gerðu í fyrra.  Þær hönnuðu glæsilegan kjól á Hólmfríði Brynju, sem var módelið þeirra og vonandi tekst okkur að setja inn mynd af Brynju í kjólnum bráðlega.  Til hamingju stelpur !!

23. apríl - Gleðilegt sumar
Við óskum nemendum og foreldrum gleðilegs sumars og þökkum fyrir veturinn með mynd af þessum fagurgula túnfífli sem oft er nú einn af fyrstu vorboðunum okkar.

15. apríl - Velkomin aftur
Nú er aftur orðið líflegt í skólanum eftir páskafríið.  Á morgun verður unnið í verklegum stærðfræðistöðvum hér og þar um skólann þar sem nemendur vinna saman í aldursblönduðum hópum, annars vegar 1. - 4. bekkur og hins vegar 5. - 7. bekkur.  Þessi vinna er í eina kennslustund og verður endurtekin næstu þrjá fimmtudaga.

1. apríl - Páskatengja
Ný tengja var send í tölvupósti til allra í dag.  Hana má einnig lesa hér.

30. mars - vel heppnaðir smiðjudagar að baki
Smiðjudagarnir okkar fyrir helgi heppnuðust mjög vel og hér urðu til leikföng, kofar, stuttmyndir, risastór fugl og margt fleira skemmtilegt.  Við þökkum innilega þeim foreldrum sem komu og áttu stund með börnunum þessa daga eða voru  jafnvel báða dagana í fullri vinnu við að aðstoða nemendur ! 
Á föstdaginn kemur er síðasti dagur fyrir páskafrí og þá förum við að venju á skauta og höldum páskabingó hér í skólanum.  Nánari upplýsingar um það koma í tölvupósti í dag eða næstu daga.

26. mars - smiðjudagur - síðdegisopnun bókasafns
Í dag var öll kennsla með óhefðbundnu sniði.  Nemendur tóku þátt í ýmsum smiðjum,  einhverjir fóru í Kjarnaskóg og grilluðu pylsur, aðrir heimsóttu slökkvistöð, bjuggu til páskaföndur, voru í förðun og snyrtingu, íþróttum, kofasmíði, leikfangagerð, fjöruferð, tilraunastöð, slökun. ljósmyndahópi, stuttmyndagerð o.fl. 
Allt gekk þetta eins og í sögu og á morgun höldum við áfram á sömu nótum.
Í dag er svo síðdegisopnun bókasafns fyrir nemendur og foreldra saman í síðasta sinn á þessu skólaári.

19. mars - bókasafn opið síðdegis - bingó í kvöld !!
Nemendur 10. bekkjar verða með bingó í íþróttasalnum í kvöld og hefst það kl. 19:00.  Bingóspjaldið kostar 300 krónur.  Í hléi verða seldar vöfflur með rjóma á 300 krónur.  Gengið inn við íþróttahús. Margir góðir vinningar!
Síðdegisopnun bókasafns fyrir foreldra og nemendur saman er einnig í dag á milli kl. 16:30 og 18:00.

16. mars - Alltaf gott að heimsækja nemendur í Frístund
Nemendur í Frístund hafa ýmislegt skemmtilegt fyrir stafni.  Undanfarið hafa nokkrar dömur þar boðið starfsfólki og nemendum uppá notalega stund í nuddi.  Þá höfum við lagst á mjúkar dýnur, hlustað á slakandi tónlist og fengið nudd frá hvirfli til ilja með til þess gerðum tólum.  Ekki amalegt að fá svona þjónustu seinni hluta dagsins :-)

13. mars - Skólahreysti
Í gær kepptu grunnskólarnir hér á Akureyri og nágrenni í skólahreysti.  Þetta er skemmtileg keppni og fjölmennt lið áhorfenda og stuðningsmanna var í salnum.  Keppendur stóðu sig allir með prýði og við þökkum liðinu okkar og Baldri íþróttakennara fyrir þeirra góða þátt í keppninni.

11. mars - síðdegisopnun á bókasafni hefst á ný
Á morgun, fimmtudag 12. mars, ætlum við að fara af stað aftur með síðdegisopnun á bókasafni fyrir foreldra og börn saman.  Opið verður frá kl. 16:30 - 18:00 á fimmtudögum út marsmánuð, þ.e. 12., 19. og 26. mars.  Heitt á könnunni og notalegt andrúmsloft á bókasafninu.  Hlökkum til að sjá ykkur !

6. mars - skólaskipið Dröfn
Á föstudaginn fóru nemendur 9. og 10. bekkjar í um tveggja tíma ferð með skólaskipinu Dröfn.  Í einum hópnum reyndust vera sérstakar aflaklær en sá hópur dró um tvö tonn af fiski um borð.  Krakkarnir tóku þátt í að gera að aflanum og þeir sem vildu fengu fisk með sér heim.  Ferðirnar tókust sérlega vel og var haft orð á því að áhöfn Drafnar hefði tekið einstaklega vel á móti nemendum og kennurum.

5. mars - Stóra upplestrarkeppnin
Í dag voru valdir fulltrúar Oddeyrarskóla til þátttöku í Stóru upplestrarkeppninni.  Nemendur lásu bæði ljóð og sögu og stóðu sig margir með prýði.  Fulltrúar okkar í lokakeppninni verða Axel Fannar Friðriksson og Agnes Erla Hólmarsdóttir og varamaður þeirra er Steinunn Alda Gunnarsdóttir. Lokakeppnin fer fram í M.A. mánudaginn 16. mars n.k. kl. 17:00.


2. mars - 5. bekkingar leggja sitt af mörkum til hjálparstarfs ABC
Nemendur 5. bekkjar hafa tekið þátt í söfnuinni Börn hjálpa börnum á vegum ABC barnahjálpar.  Krakkarnir gengu saman í hús á Eyrinni og söfnuðu en að þessu sinni var sérstaklega safnað fyrir skólamáltíðum barna.  Hjálparstarf ABC er um víða veröld, t.d. í Kenýa, Úganda, Indlandi, Pakistan og víðar. 
Nemendur í 5. bekk söfnuðu alls 73.765 krónum sem lagðar hafa verið inn á reikning ABC barnahjálpar.  Gott framlag til góðs málefnis.

25. febrúar - vetrarfrí fimmtudag og föstudag
Næstu tvo daga er vetrarfrí hjá nemendum og kennurum grunnskóla á Akureyri.  Við vonum að allir hafi það gott og njóti þess að slappa af og gera eitthvað skemmtilegt saman.  Sjáumst aftur mánudaginn 2. mars

23. febrúar - Hreystikeppni Oddeyrarskóla
Í dag fór fram Hreystikeppni Oddeyrarskóla. Keppnin fór nú fram í annað sinn og að þessu sinni var það lið starfsfólks sem fór með sigur af hólmi eftir æsispennandi keppni við nemendur 8. 9. og 10. bekkjar. 
Í liði starfsfólks voru Ingibörg, Jóhanna, Þórarinn, Baldur, Hrafnhildur Georgs, Hrafnhildur Guðjóns og Aníta.

23. febrúar - Tengja
Hér má finna nýja Tengju sem send var á öll heimili sl. föstudag.

19. febrúar - Fyrirlestur um örugga netnotkun barna 23. febrúar
Heimili og skóli og Saft, í samvinnu við Símann standa að fræðsluherferð með það að markmiði að benda á örugga og jákvæða notkun netsins.  Í erindinu er fjallað um netið sem upplýsingaveitu og tæki til samskipta og þær hættur sem þar kunna að leynast. 
Fyrirlesturinn er haldinn í sal Brekkuskóla 23. febrúar og stendur frá kl. 18:00 - 19:00


18. febrúar - Forvarnafræðsla fyrir nemendur 8. - 9. bekkjar
Í dag fóru nemendur 9. bekkjar upp í Rósenborg en þar var boðið upp á forvarnafræðslu og á morgun fá nemendur 8. bekkjar sömu fræðslu. 
Helstu viðfangsefni eru áfengi og vímuefni, kynferðisofbeldi, geðheilbrigði og tölvur og farsímanotkun. 
Foreldrum barna í grunnskólum sunnan Glerár var boðið upp á fræðslu í gærkvöldi kl. 20.  Eins er foreldrum velkomið að mæta á kynningu sem verður í matsal Síðuskóla kl. 20:00 annað kvöld, fimmtudag 19. febrúar.

17. febrúar - Heimsókn Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Í morgun fengu nemendur 1.-7. bekkjar heimsókn frá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.  Þar var flutt verkið Lykillinn en sagan er eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson og tónlistin eftir bróður hans, Tryggva M. Baldvinsson.  Sögumaður var Hannes Blandon.  Við þökkum kærlega fyrir góða heimsókn sem nemendur og starfsfólk nutu vel.

13. febrúar - SMT dagur í skólanum
Í gær voru fyrstu fjórar kennslustundir dagsins helgaðar vinnu sem tengist SMT og nemendur unnu með skólareglur og hugtökin ÁBYRGÐ - VIRÐING - VINÁTTA á ýmsan hátt.  Sigrún Sveinbjörnsdóttir, sálfræðingur, heimsótti nemendur 8.-10. bekkjar og Pétur Þorsteinsson, djákni, heimsótti nemendur 6.-7. bekkjar.  Fjölbreytt verkefni voru unnin á öllum stigum, m.a. unnu yngstu nemendur veggteppi þar sem hver á sinn bút í heildarmyndinni.

12. febrúar - skólaval fyrir verðandi 1. bekkinga haustið 2009
Í gærkvöldi stóð skóladeild Akureyrarbæjar fyrir kynningarfundi fyrir foreldra um val á grunnskóla fyrir verðandi nemendur 1. bekkjar haustið 2009.  Einnig hefur verið gefinn út bæklingur á rafrænu formi með kynningum á skólunum.  Loks verður opið hús í grunnskólunum þar sem foreldrum er boðið að koma í heimsókn í skólana.  Opið hús hjá okkur í Oddeyrarskola verður mánudaginn 16. febrúar milli kl. 9 og 11.

10. febrúar - 112 dagurinn
Á morgun, 11. febrúar, er 112 dagurinn.  Þá er upplagt að rifja upp með börnum þetta nauðsynlega númer sem allir þurfa að geta hringt í, t.d. vegna slysa, eldsvoða, afbrota eða óska um björgun af einhverju tagi.  Einnig er hægt að ná sambandi við barnaverndir landsins í gegnum 112.  Fylgjumst með því að börnin okkar þekki neyðarnúmerið !

5. febrúar - frí í skólanum á morgun, föstudag 6. febrúar
Á morgun, föstudag 6. febrúar, er frí í skólanum þar sem nemendur og starfsfólk, að ógleymdum foreldrum, áttu ánægjulegan skóladag síðasta laugardag, sem var árshátíðardagurinn okkar.  Hittumst hress á mánudaginn eftir langt helgarfrí. J

2. febrúar  -  vel heppnuð árshátíð
Árshátíð nemenda var haldin laugardaginn 31. janúar.  Allt gekk eins og í sögu og nemendur stóðu sig með prýði.  Það sama gildir um foreldra sem alltaf eiga ómetanlegan þátt í að skapa hér hátíðarsvip með þátttöku og veisluföngum.  Ein móðir var sérstaklega dugleg að vera með myndavél á lofti og hún gaf okkur leyfi til að benda ykkur á myndaslóð: www.123.is/ollana  og fara þar inn í myndaalbúm til að skoða.

28. janúar - árshátíðartengja
Í gær var Tengja send í tölvupósti til foreldra.  Í henni er að finna allar upplýsingar um árshátíðina sem er á laugardaginn! Tengjuna má líka lesa hér.

23. janúar - fjáröflun 10. bekkinga í fullum gangi
Nemendur 10. bekkjar eru nú að selja WC-pappír.  Ef þið hafið áhuga á kaupum er bæði hægt að hafa samband við einhvern af nemendum 10. bekkjar eða beint við okkur í skólanum. Stór pakkning kostar  5.800 krónur.

22. janúar - gestir í heimsókn
Í dag fengum við heimsókn gesta sem eru í réttindanámi í kennslufræði við Háskólann.  Þeir fengu fræðslu um skólastarfið og heimsóttu marga bekki og ræddu við nemendur.

21. janúar - árshátíð nálgast
Nú er árshátíðarundirbúningur í fullum gangi og margir orðnir spenntir.  Árshátíðin verður með hefðbundnu sniði laugardaginn 31. janúar og verða sýningar kl. 13 og 16.  Nánari upplýsingar berast í Tengju innan skamms.

6. janúar - gjaldskrárbreytingar
Á fundi bæjarráðs þann 18. desember voru gerðar breytingar á gjaldskrám Akureyrarbæjar árið 2009.  Ný gjaldskrá sem snýr að grunnskólanum gildir frá 1. janúar 2009 og er þannig:
    Annaráskrift - hver máltíð ................  307 krónur
    Stök máltíð .......................................  415 krónur
     Síðdegishressing í frístund  ............      61 króna

2. janúar 2009  -  gleðilegt nýtt ár !
Við óskum nemendum og foreldrum gleðilegs árs og þökkum fyrir samstarfið á árinu sem er liðið.  Skólastarf á nýju ári hefst þriðjudaginn 6. janúar samkvæmt stundaskrá.