
Nemendur fylltu búr af
vatni, þriðjudaginn 25.10, og settu svo nestis-
afganga ofan í það.
Þeir komu svo með alls konar hugmyndir að
því sem myndi gerast.
Því miður gleymdum við að taka myndir þann
dag sem maturinn var
settur ofan í búrið en hér eru myndir eftir að
hann er búinn að vera
í vatninu í einn sólahring.
Nemendur settu líka
ýmiskonar dót í dall fullan af vatni. Það er líka
ætlunin að fylgjast
með hvað verður um það sem fór þangað ofan í.
|
|
Svo leið langur tími
og þann 22.11´05 fórum við í það verkefni að tæma
búrið sem var með nestisafgöngum í. Við urðum mjög óvinsæl í skólanum
þar sem himneskur ilmur lagði um gangana. Krakkar úr öðrum bekkjum
komu til að vita hvað hefði dáið og rotnað en nei, við vorum bara að
tæma fallega búrið okkar með ljúffenga nestinu í.
Hér eru myndir frá
tæmingu. Kennari villa taka fram að Björgvin Freyr var
lang, lang duglegastur við að hjálpa til við tæmingu og þrif. Glæsilegt
hjá honum.