11. maí - Blað nemenda Ég sé Akureyri
Hlekkur á blaðið Ég sé Akureyri
sem nemendur unnu á smiðjudögum í tilefni af afmælisári bæjarins er
kominn á síðuna hér til hægri.
9. maí - Bókasafn Oddeyrarskóla fær úthlutun frá Skólasafnasjóði
Árið 2010 stofnaði Félag íslenskra
bókaútgefenda Skólasafnasjóð en félagið veitir táknræna
styrki til safnanna sem fyrst og fremst eru ætlaðir til að sýna að
jafnvel litlar fjárhæðir skipta miklu máli fyrir söfnin. Markmiðið
er að það verði á vitoðri sem allra flestra að bókasöfn
grunnskólanna eru hornsteinn lestrarhvatningar íslenskra barna. Við
þökkum bókaútgefendum kærlega fyrir okkur!
8. maí - Sýning á vinnu nemenda í Flugstöðinni og á útisvæði
Sundlaugar
Dagana 7. - 21. maí sýna leik-og
grunnskólanemendur Akureyrarbæjar ýmis verk á opinberum stöðum í
bænum í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins. Nemendur Oddeyrarskóla
eiga verk sem eru til sýnis í Flugstöðinni og á útisvæði við
Sundlaug Akureyrar, í kringum busllaugar og heita potta. Nemendur
hafa unnið myndlistaverk, búið til spurningaspil, blað um Akureyri,
púsluspil og ýmislegt fleira sem hægt er að sjá á þessum stöðum. Við
hvetjum alla til að skoða vinnu nemenda á þessum stöðum.
4. maí - Nóg um að vera úti og inni
Í þessari viku fóru nemendur 1.-4.
bekkjar inn í Kjarnaskóg og gekk sú ferð hið besta. Þar er nóg við
að vera og kennarar tóku með sér pylsur og allir borðuðu í skóginum.
Nú eru nemendur í útiíþróttum sem ekki hefur verið amalegt í þessu
fína veðri. Nemendur 5. og 6. bekkjar hafa líka verið að vinna við
gerð fjölbreyttra farartækja sem þau knýja áfram með rafhlöðum og
mæla svo hvað þau komast langt eftir ganginum. Verkfræðingar
framtíðarinnar!
30. apríl - Matseðill fyrir maí/júní
Matseðill fyrir maí og júní er kominn á
sinn stað á síðunni.
24. apríl - Nemendur taka áfram þátt í vinnu vegna 150 ára afmælis
Akureyrarbæjar
Í morgun fóru um 20 nemendur (tveir úr
hverjum bekk) með kennurum upp í Rósenborg en þar eru allir
grunnskólar og leikskólar bæjarins að vinna saman mósaikverk með
afmælismerki bæjarins. Okkar hópur var fyrsti hópurinn sem lagði
flísar í verkið en hverjum skóla úr úthlutað svæði til að vinna með.
Ef svo fer sem horfir verður þetta hin glæsilegasta mynd sem verður
afmælisgjöf til bæjarins frá leik- og grunnskólabörnum.
18. apríl - Sumar- Tengja
Ný Tengja hefur verið send til
foreldra/forráðamanna. Hana má einnig lesa
hér
17. apríl - Hreystikeppni Oddeyrarskóla
Í morgun var Hreystikeppni
Oddeyrarskóla haldin í íþróttasalnum. Þar kepptu lið frá 8.
bekkingum, 9. bekkingum, 10. bekkingum og frá starfsfólki. Verulega
reyndi á keppendur (sérstaklega þá eldri) í hlaupum, klifri,
uppstigum, sippi og fleiri greinum. Allir nemendur skólans fylgdust
með og fögnuðu sigurvegurunum sem voru nemendur 10. bekkjar :-)
16. apríl - Bingó á morgun kl. 19:30
Á morgun, þriðjudag 17. apríl, ætla nemendur 10. bekkjar að halda
bingó í íþróttasal skólans kl. 19:30.
Hvert bingóspjald kostar 500 krónur og í hléi verður hægt að kaupa kaffi og
vöfflur með rjóma á 400 krónur.
Margt góðra vinninga í boði. Bingóspil krefst bæði þolinmæði og
eftirtektar og því biðjum við foreldra yngri barna að koma með þeim
og
aðstoða þau við spilið.
12. apríl - Legótímar
Í
dag fengu nemendur 5. og 6. bekkjar heimsókn frá Jóhanni Breiðfjörð
sem kom og kynnti fyrir þeim þá óteljandi möguleika sem Legó
kubbarnir búa yfir. Krakkarnir tóku honum fagnandi og áhugi og
sköpunargleði ríkti í tímunum.
31. mars - Matseðill aprílmánaðar
Matseðill
aprílmánaðar er kominn á sinn stað hér á síðunni.
30.
mars - Páskafrí nemenda
Eftir skautaferð, bingóspil
og pizzu í hádeginu hófst páskafrí nemenda í dag. Kennsla hefst að
nýju að fríi loknu, þriðjudaginn 10. apríl.
Gleðilega páska!
28. mars -
Nemendur 1.-4. bekkjar horfa á danssýningu
Það var gaman að
fylgjast með svipbrigðum og áhuga nemenda 1.-4. bekkjar þegar þeir
fylgdust með danssýningu Önnu og Camilos í dag. Fleiri myndir má sjá
hér
27. mars -
Sýningar nemenda grunnskólanna í leiklistarvali á Jesús-Kristur
súperstjarna
Í kvöld og annað kvöld (27.
og 28. mars) er leikhópurinn Adrenalín með sýningar á verkinu
Jesús-Kristur súperstjarna í Rýminu, kl. 20:00, bæði kvöldin.
Miðaverð er kr. 1.500 en frítt fyrir 12 ára og yngri. Sýningin tekur
um klukkustund og býður upp á leik, söng og dansatriði.
Miða má panta í síma 4 600 200 og á
www.midi.is og
www.leikfelag.is
27. mars -
Páska-Tengja
Ný Tengja hefur verið send
til allra forráðamanna nemenda. Hana má einnig lesa
hér
21. mars -
Tengja - um smiðjudaga og fleira
Í dag og á morgun er engin
hefðbundin kennsla í skólanum en nemendur vinna í hópum að ýmsum
verkefnum sem tengjast aflmæli Akureyrarbæjar á einhvern hátt.
Tengja var send heim í dag. Hana má einnig lesa
hér
16. mars -
Samsöngur nemenda í grunn- og leikskólum í Skátagilinu í dag
Í dag komu um 1500 nemendur
úr grunn- og leikskólum bæjarins saman í Skátagilinu og sungu í
tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Viðburðum í tilefni
afmælisins er dreift á almanaksárið, þó svo að afmælisdagurinn
sjáfur sé 29. ágúst. Veðrið lék við okkur og krakkarnir voru
frábærir ☺
15. mars -
Vel heppnaður útivistardagur í Hlíðarfjalli
Í dag fóru allir nemendur
skólans upp í Hlíðarfjall. Þar var hægt að verea á skíðum, brettum,
þotum eða sleðum og var færi hið besta eftir kærkomna snjókomu í
gær. Nokkrir nemendur gengu heim ofan úr fjalli með kennara. Við
vonum að allir hafi átt ánægjulegan útivistardag. Nokkrar myndir frá
ferðinni má sjá
hér
14. mars - Stefnt á skíðaferð á morgun
Á morgun, fimmtudag, stefnum við að því að fara í Fjallið með
nemendur. Því miður er alltaf einhver óvissa til staðar vegna veðurs
og ekki hægt að taka 100% ákvörðun fyrr en við höfum náð sambandi
við starfsmenn efra í fyrramálið. Nemendur 1.-4. bekkjar verða
í skólanum til 13:10 eins og venjulega. Eldri nemendur koma heim
eftir að hafa fengið hádegismat (þeir sem eru skráðir í mat eða eru
með nesti).
ATHUGIÐ AÐ
EF NEMENDUR EIGA AÐ FÁ AÐ VERA LENGUR EFRA VERÐA FORELDRAR AÐ HAFA
SAMBAND VIÐ UMSJÓNARKENNARA OG LÁTA VITA. ÞÁ ERU NEMENDUR Á ÁBYRGÐ
FORELRA SINNA EFTIR HÁDEGI.
8. mars - Lokahátíð Stóru
upplestrarkeppninnar
Í gær var lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar haldin að Hólum í
M.A. Eins og ætíð var hátíðarbragur yfir þessari stund og allir 15
þátttakendur stóðu sig vel. Sigurvegari að þessu sinni kom frá
Lundarskóla. Alfreð og Vikar voru sér og skólanum sínum til mikils
sóma.
6. mars - Æft fyrir afmæli Akureyrarbæjar
Þann 29. ágúst 2012 fagnar Akureyrarbær 150 ára afmæli sínu. Í
tilefni af því er ýmislegt gert til hátíðabrigða í bænum allt
almanaksárið. Dagana 16. og 23. mars munu nemendur grunn- og
leikskóla bæjarins syngja saman í miðbænum (helmingur hvorn dag) og
í gær og í dag tókum við létta söngæfingu í íþróttasalnum við
undirleik Ívars. Nemendur stóðu sig vel og söngurinn fyllti salinn ☺
29. febrúar - Matseðill marsmánaðar
Matseðill marsmánaðar er kominn á sinn stað hér til hægri á síðunni.
22. febrúar - Vetrarfrí í grunnskólum
Akureyrar
Í dag, öskudag, er frí í skólanum og vetrarfrí allra grunnskóla
Akureyrarbæjar tekur svo við á morgun, fimmtudag og á föstudag. Við
vonum að allir hafi það gott þessa daga og mæti sprækir til leiks
þegar kennsla hefst að nýju skv. stundaskrá, mánudaginn 27. febrúar.
Þá hefst einnig síðasta önn þessa skólaárs eftir annaskil og
foreldraviðtöl nú fyrr í vikunni.
17. febrúar - Umboðsmaður barna í heimsókn
Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna kom í heimsókn í
skólann í dag. Hún hitti nemendur 5. og 7. bekkjar saman og alla
nemendur á unglingastigi. Hún fræddi krakkana um starf sitt og
hlutverk og ræddi bæði um réttindi og skyldur. Við þökkum henni
kærlega fyrir fræðslu og góða heimsókn.
16. febrúar - Ný Tengja
Fréttabréfið Tengja hefur verið sent til allra foreldra. Það má
einnig lesa
hér
16. febrúar - Þátttakendur skólans í Stóru
upplestrarkeppnina valdir í dag
Í dag tóku 7. bekkingar þátt í úrtöku innan skólans fyrir Stóru
upplestrarkeppnina. Allir nemendur bekkjarins lásu og dómnefnd valdi
síðan fulltrúa bekkjarins í lokakeppnina sem fer fram að Hólum, M.A.
þann 7. mars. Fulltrúar skólans eru þeir Alfreð Steinmar Hjaltason,
Vikar Mar Valsson og varamaður þeirra er Bjarni Fannar Sigurjónsson.
Við óskum þeim öllum til hamingju og þökkum 7. bekkingum fyrir
þátttökuna og gott hljóð í bekknum meðan á lestri stóð.
14. febrúar - Námskeið fyrir foreldra barna
með ofvirkni og/eða athyglisbrest
PMT foreldranámskeið hefst í mars á vegum fjölskyldudeildar
bæjarins. Um er að ræða átta vikna námskeið foreldrahópa, einu sinni
í viku. Nánari upplýsingar má finna
hér
9. febrúar - 10. bekkur fær fræðslu um
netnotkun
Í gær heimsótti Guðjón Hauksson, kennari við MA, nemendur 10.
bekkjar og ræddu við þau um netnotkun. Það er umhugsunarvert fyrir
okkur öll hvernig við notum netið, hvað við segjum þar og hvaða
upplýsingar við gefum um okkur sjálf eða aðra. Nauðsynleg umræða,
bæði í skóla og ekki síður á heimilum barna og unglinga.
3. febrúar - Valhópur í heimilisfræði bakar
handa nemendum í frístund
Það hljóp heldur betur á snærið hjá krökkunum í frístund í dag en
nemendur 9. og 10. bekkjar í heimilisfræðivali bökuðu handa þeim.
Boðið var upp á trallakökur, skinkuhorn, muffins með súkkulaði og
pizzusnúða. Góður endir á vikunni! ☺
2. febrúar - 100 daga hátíðin - besti
dagur lífs míns!
Í dag var mikil hátíð hjá nemendum og kennurum 1. bekkjar en í dag
hafa 1. bekkingar verið 100 daga í grunnskóla. Það var haldið upp á
daginn með kórónum og fíneríi. Samhliða æfðu nemendur sig í að telja
10 tugi upp í 100. Allir fengu kramarhús og hver og einn taldi 10
stykki af poppi, lakkrís, rúsínum, saltstöngum og ýmsu góðgæti í
sitt kramarhús þar til allir höfðu fengið 100 stykki. Eftir að hafa
borðað eitthvað af góðgætinu var farið í skrúðgöngu um ganga skólans
og klappað fyrir 100 skóladögum. Allir voru sammála um að þetta væri
besta partý sem þeir hefðu tekið þátt í - eða eins og einn sagði:
Þetta er besti dagur lífs míns! Fleiri
myndir frá 100 daga hátíðinni má finna
hér
30. janúar - Nokkrar myndir frá árshátíð
Að venju voru öll atriði árshátíðar tekin upp á myndband á
sýningunni á föstudag. Auk þess voru nokkrar myndir teknar á hlaupum
á sýningum á laugardaginn. Því miður náði ljósmyndarinn ekki að
hitta alla bekki en náði myndum hér og þar. Nokkrar þeirra má sjá
hér
27. janúar - Enginn skóli mánudaginn 30.
janúar
Við minnum á að það er frí í skólanum mánudaginn 30. janúar vegna
árshátíðar laugardaginn 28. janúar.
27. janúar - Árshátíðarsýning fyrir
nemendur
Í dag tóku allir bekkir þátt í árshátíðarsýningum. Er skemmst frá
því að segja að allt gekk vel upp og nemendur hafa verið duglegir að
æfa atriði sín og komu þeim vel frá sér. Áhorfendur voru með
eindæmum stilltir og héldu athygli sinni óskertri og verður það að
teljast meðmæli með sýningunum.
20. janúar - Tengja - upplýsingar um
árshátíð nemenda
Upplýsingar um skipulag á árshátíð nemenda 27. og 28. janúar hafa
verið sendar til foreldra í Tengju. Hana má einnig lesa
hér
18. janúar - Maritafræðsla fyrir nemendur
5. og 6. bekkjar og foreldra þeirra
Í gær fengu nemendur 5. og 6. bekkjar forvarnafræðslu á vegum
Maritaverkefnisins. Foreldrar voru sérstaklega hvattir til að mæta
og eftir sameiginlega fundinn með krökkunum fengu þeir
sérstaka fræðslu þar sem komið var inn á tölvunotkun, ofbeldi í
tölvuleikjum, notkun á Facebook og ýmsa aðra þætti sem nauðsynlegt
er fyrir foreldra að fyljgast með. 28 foreldrar mættu í skólann og
við þökkum þeim kærlega fyrir komuna, enda mikilvæg fræðsla sem
boðið var upp á.
12. janúar - Skipulag heilsugæslu eftir
bekkjum
Upplýsingar um skipulag heilsugæslu eftir bekkjum eru nú komnar
undir flipann Skólanámskrá hér til vinstri á síðunni.
Við höldum áfram endurskoðun skólanámskrár og þeirra upplýsinga sem
þar koma fram í vetur.
6. janúar - Tveir nýir hlekkir á heimasíðu
og Tengja um stundvísi
Hér til hægri á síðunni hafa bæst við tveir nýir hlekkir; annar með
tengingu inn á sjö vikna matseðil hjá skóladeild og á hinum má finna
nýja aðalnámskrá grunnskóla (almennan hluta) og lög og reglugerðir.
Ný Tengja hefur verið send heim til foreldra og hana má einnig lesa
hér
2. janúar 2012 - Gleðilegt ár!
Stjórnendur Oddeyrarskóla óska starfsfólki, nemendum og foreldrum
gleðilegs árs. Nú fylgjumst við með sólinni hækka á lofti og brátt
munum við finna hvernig dagurinn lengist um hænufet á dag.
Skólastarf hefst á morgun, þriðjudaginn 3. desember kl. 8:00 skv.
stundaskrá.
20. desember - Allir nemendur skólans fengu
send jólakort sem voru dúkristur sem 7. bekkingar hafa unnið
Að venju sendi starfsfólk skólans nemendum skólans og fjölskyldum
þeirra jólakort. Að þessu sinni voru það nemendur 7. bekkjar sem
unnu kortin í myndmenntatímum og eru þau dúkristur sem eru þrykktar
ein og ein, þannig að engin tvö kort eru eins. Við þökkum nemendum
7. bekkjar kærlega fyrir þeirra framlag og frábær jólakort.
Sýnishorn af þeim má sjá
hér
Við óskum öllum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og
þökkum ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
16. desember - Nemendur 5. og 6. bekkjar
með leiksýningu um jólasveina og helgileik
Í desember hafa nemendur 5. og 6. bekkjar unnið saman í þemavinnu
einu sinni í viku. Einn hópurinn æfði uppsetningu á Jólasveinakvæði
Jóhannesar úr Kötlum og setti upp helgileik. Myndir frá sýningu
hópsins má sjá
hér
15. desember - Allir fá kakó með rjóma og
piparkökur
Í dag fengu allir nemendur skólans kakó með rjóma og piparkökur. Það
voru nemendur 9. bekkjar og kennarar þeirra sem höfðu veg og vanda
að því að skapa kaffihúsastemningu með kertaljósum og jólatónlist í
raungreinastofunni. Þangað komu svo bekkirnir, hver af öðrum og 9.
bekkingar gengu um og helltu kakói og rjóma í glös allra. Þetta
tókst með miklum ágætum og nemendur ánægðir með tilbreytinguna og
veitingarnar ☺
14. desember - Jólamatur
Í dag fengu allir nemendur jólamat í hádeginu. Boðið var upp á
svínaskinku með sósu og rjómasalati og tóku menn vel til matar síns.
Nemendur 1. bekkjar mættu saddir af heitu súkkulaði sem foreldrar
þeirra höfðu boðið upp á um morguninn - en á morgun verður öllum
nemendum boðið upp á kakó, rjóma og piparkökur.
12. desember - Jólalögin sungin á ganginum
Það er gott að byrja vikuna á því að koma saman á ganginum og syngja nokkur jólalög.
11. desember - Þriðji sunnudagur í aðventu
Í dag er þriðji sunnudagur í aðventu og þá kveikja margir á þriðja
kertinu á aðventukransinum. Það er nefnt hirðakerti og á að
minna á að það voru fjárhirðar úti í haga sem fengu boð um fæðingu
frelsarans fyrstir allra.
9. desember - Laufabrauðsdagur
Í dag er laufabrauðsdagur í skólanum. Allir nemendur skera út köku,
bera hana til steikingar og síðan borða allir sína köku. Eldri
nemendur aðstoða þá yngri og 8. bekkingar heimsóttu vini sína í 1.
bekk. Fleiri myndir frá 1. bekkingum má sjá
hér
8. desember - Ný Tengja
Ný Tengja hefur nú verið send til allra foreldra. Hana má einnig
lesa
hér
7. desember - Afmælisdagur skólans
Oddeyrarskóli var tekinn í notkun þann 7. desember 1957 og er því 54
ára í dag!
4. desember - Annar sunnudagur í aðventu
Í dag er annar sunnudagur í aðventu og þá er kveikjum við
á öðru kerti á aðventukransinum. Það er nefnt Betlehemskerti en þá
hugsum við til borgarinnar þar sem Jesús fæddist.
1. desember - Piparkökubakstur
Fleiri myndir frá piparkökubakstri 6.
og 7. bekkjar má finna
hér
1. desember - Fullveldisdagur
Nemendur og kennarar hafa gjarnan einhverja tilbreytingu í kennslu þann 1.
desember. Oft höfum við notað eina til tvær kennslustundir í að
kenna eldri nemendum að spila félagsvist og við höldum þeim sið í
ár.
Í dag fara 7. bekkingar í heimsókn á Iðavöll og lesa
fyrir krakkana þar. Það er líka verið að leggja síðustu hönd á
dagatöl í bekkjunum og eins og í fyrra er desember mánuður
vináttunnar. Í matsalnum hefur verið settur upp rammi sem við
viljum fylla með góðverkum, til að minna okkur öll á að
hjálpast að og aðstoða hvert annað þegar þess þarf.
27. nóvember - Aðventa gengur í garð
Aðventan byrjar fjórða sunnudag fyrir jóladag, á bilinu 27. nóvember
til 3. desember og með henni hefst kirkjuárið. Orðið
aðventa er dregið af latneska orðinu adventus,
sem merkir tilkoma. Litur aðventunnar er fjólublár og táknar iðrun
og yfirbót.
Í Suður-Þýskalandi fór fólk að búa til aðventukransa á 19.
öld. Síðan barst þessi siður norður eftir Evrópu en á Íslandi sáust
ekki aðventukransar fyrr en eftir síðari heimsstyrjöld og þá fyrst
sem skraut í einstaka verslunum og veitingahúsum. Þeir breiddust
mjög hægt út og urðu ekki algengir fyrr en á milli 1960 og 1970.
Kertin fjögur á aðventukransinum tákna sunnudagana fjóra
í jólaföstu. Fyrsta kertið, sem við kveikjum á í dag, nefnist
spámannskerti. Það minnir á fyrirheit spámanna Gamla
testamentisins, sem höfðu sagt fyrir um komu frelsarans.
22. nóvember - Skáld í skólum
Í morgun fengu nemendur 5.-7. bekkja heimsókn frá þeim Margréti
Örnólfsdóttur og Kristínu Helgu Gunnarsdóttur sem lásu upp úr bókum
sínum fyrir krakkana.
21. nóvember - Forvarnafræðsla eldri bekkja
þessa viku
Maríta, forvarnafræðsla, fyrir nemendur 7. - 10. bekkjar fer fram
þessa viku. Auk þess er nemendum 5. bekkjar boðið á fræðslufund
ásamt foreldrum sínum, utan skólatíma. Fræðsla fer fram í Rósenborg
á mánudag en hina dagana í Brekkuskóla.
Mánudagur 21. nóv.
9. bekkur kl. 13.00 - 14:00
Miðvikudagur 23. nóv. 10. bekkur kl.
8:15 - 9:45
Föstudagur 25. nóv.
8. bekkur kl. 10:00 - 11:00
Föstudagur 25. nóv.
7. bekkur kl. 11:15 - 12:15
Fræðsla fyrir foreldra verður haldin í Hofi (í
salnum Hömrum) fimmtudagskvöldið 24. nóvember kl. 20:00
Fræðsla fyrir nemendur 5. bekkjar og
foreldra þeirra fer einnig fram í Rósenborg, þriðjudaginn 22.
nóvember kl. 17:00 - 18:30
16. nóvember -
Dagskrá í
tilefni af Degi íslenskrar tungu í hátíðarsal Háskólans á Akureyri
Sjá nánar
hér
14. nóvember - Norræn bókasafnsvika og
danskur farkennari í heimsókn
Nú er norræn bókasafnsvika og hafa fánar allra Norðurlanda verið
settir upp í bókasafninu. Þar er lögð áhersla á að kynna norræna
rithöfunda og nemendur 5. bekkjar hafa verið að vinna með þekktar
sögupersónur norrænu höfundanna.
Í dag kom einnig danskur farkennari í
skólann og verður hjá okkur næstu fjórar vikur. Hún heitir Mette
Lybæch og mun vinna með nemendum 7. - 10. bekkjar og dönskukennurum
þeirra.
9. nóvember - Allir nemendur fá
endurskinsmerki frá foreldrafélagi
Foreldrafélag skólans gefur öllum nemendum skólans tvö
endurskinsmerki sem verða afhent í dag.
8. nóvember - Dagur gegn einelti
Til að vekja athygli á deginum liggur aðgerðaráætlun skólans gegn
einelti frammi við allar stofur en í dag eru annaskipti og
foreldraviðtöl í skólanum. Í tilefni dagsins á að dreifa gulum
armböndum með áletruninni Jákvæð samskipti á meðan upplag
endist.
3. nóvember - Fréttablaðið Tengja
Ný Tengja hefur verið send í tölvupósti til foreldra. Hana má einnig
lesa
hér
30. október - Fundargerð aðalfundar
foreldrafélagsins
Fundargerð aðalfundar foreldrafélagsins er komin á vef félagsins hér
til vinstri á síðunni. Þar má finna skýrslu formanns og reikninga
félagsins.
28. október - Leitin að grenndargralinu
stendur enn
Þann 30. ágúst sögðum við frá því hér á síðunni að nemendur
Oddeyrarskóla tækju nú í fyrsta sinn þátt í Leitinni að
grenndargralinu. Leitinni er ætlað að auka áhuga þátttakenda á
nánasta umhverfi sínu í gegnum spennandi ratleik. Nú er að síga á
seinni hluta leiksins en allar nánari upplýsingar um gang mála má finna í
fréttablaði
hér
24. október - Fjölgreindadagur síðasta
föstudag
Á föstudaginn var fjölgreindadagur í skólanum. Nemendum var skipt í
hópa alveg þvert á bekki og allir glímdu við 18 ólík verkefni þar
sem reyndi á misjafna hæfileika og kunnáttu. Nemendur hlustuðu á
tónlist, teiknuðu, réðu dulmál, skoðuðu íslenska fugla, reyndu að
þekkja ráðamenn þjóðarinnar og margt fleira. Nokkrar myndir frá
fjölgreindadeginum má finna
hér
20. október - 10. bekkingar fagna samræmdum
könnunarprófum - og halda þrumugleði
Flestir nemendur 10. bekkjar slettu aðeins úr klaufunum í
íþróttasalnum í morgun - en nokkrir buðu sig fram til að útbúa
leynilega veislu, þar sem boðið var upp á fagurlega skreyttan ísrétt
í tilefni af samræmdum prófum - og svo var líka þrumugleði. Fleiri
myndir má skoða
hér
19. október - Ný Tengja
Fréttablaðið Tengja hefur verið sent í tölvupósti til allra
foreldra. Það má einnig lesa
hér
19. október - Endurgerð viðbragðsáætlun
gegn einelti
Viðbragðsáætlun skólans gegn einelti hefur nú verið endurgerð og er
komin á heimasíðuna undir flipanum Skólanámskrá hér
til vinstri. Þar má einnig finna hlekki á ýmsa vefi sem tengjast
upplýsingum um eineltismál.
17. október - Tíu góð ráð um námstækni -
fín síða fyrir nemendur!
Undir hlekknum Námsráðgjafi hér til vinstri er komin
ný síða þar sem nemendur geta fundið góð ráð um námstækni og
hlekki sem vísa þeim leið að ýmsum gagnlegum upplýsingum.
14. október - Fleiri myndir frá ferð 1.
bekkinga í Ketilhúsið
Fleiri myndir frá ferð 1. bekkinga í Ketilhúsið má finna
hér
14. október - Nýr hlekkur um félagsmiðstöð
Hér til vinstri á síðunni er kominn nýr hlekkur Félagsmiðstöð
en þar er að finna upplýsingar um félagsmiðstöðina Tróju sem er
fyrir unglinga í grunnskólum sunnan Glerár.
13. október - Útivist í góða veðrinu
Nemendur og kennarar hafa notað tækifærið og lagt land undir fót
þessa þurru og hlýju daga. Í gær fóru nemendur 1. bekkjar á sýningu
í Ketilhúsinu en þar bauð Brynhildur upp á ýmislegt nýstárlegt og
höfðaði til ólíkra skynfæra barnanna sem gengu berfætt á mismundandi
undirlagi, fengust við listsköpun úr ýmsu endurnýjanlegu efni o.fl.
- Í dag fóru 6. bekkingar út að Hundatjörn og höfðu bæði með sér stóran
planka sem þau notuðu sem brú og stóran háf. Þau fundu mikið af
lífverum sem þau báru heim í fötum og eru búin að setja upp fiskabúr
í stofunni sinni. Næstu daga rannsaka þau svo hvað það var sem þau
fundu í vatninu.
12. október - Þrumugleði í 6. bekk
Í dag voru 6. bekkingar með þrumugleði og héldu hæfileika"keppni"
sem var mjög skemmtileg. Greinilegt var að margir höfðu lagt sig
fram við æfingar og var fjölbreytnin mikil. Það var byggður pýramídi
úr krökkum, dansað, sungið, farið í leiki, haldin fimleikasýning og
viðstöddum kennt að klappa froski :-)
7. október - Kleinudagur
Í dag er fyrsti kleinurdagur vetrarins. 10. bekkingar,
umsjónarkennarar þeirra og foreldrar steikja kleinur úr 30 kílóum af
hveiti - og afraksturinn rennur út!
5. október - Forvarnadagurinn
Í dag var árlegur forvarnadagur en þá er unnið með forvarnir
af einhverju tagi með nemendum 9. bekkjar. Nemendur unnu í hópum
verkefni þar sem áhersla var á forvarnagildi íþrótta-og
tómstundamála og mikilvægi sterkra fjölskyldutengsla.
2. október - Aðalfundur foreldrafélagsins
Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn í matsal skólans
fimmtudagskvöldið 6. október kl. 20:00
Hefðbundin aðalfundarstörf.
Með von um að foreldrar láti sig félagsskapinn varða og mæti.
Stjórnin
30. september - Foreldrar og nemendur eiga
góðar stundir saman
Í gær hittust foreldrar og nemendur 6. bekkjar í skólanum til að
spila saman. Þeir fengu til sín gesti frá Spilavinum sem
kynntu skemmtileg og lærdómsrík spil af ýmsu tagi. Um kvöldið komu
svo nemendur og foreldrar 8. bekkinga saman og gistu í
íþróttasalnum. Það þarf oft ekki að kosta mikið að eiga saman
góða stund sem styður við góðan bekkjaranda og eflir kynni milli
foreldra.
29. september - Málþingið Þú
skilur mig ekki
Málþingið Þú skilur mig ekki
verður haldið í kvöld kl. 20:00 í Hofi. Það er ætlað öllum sem koma
að uppeldi barna og unglinga og sjónum beint sérstaklega að tengslum
innan fjölskyldunnar. Leitað verður svara við spurningum á borð við:
Hvernig geta foreldrar skilið unglingana? og Hvernig geta
unglingar skilið foreldrana?
27. september - fréttabréfið Tengja
Nýtt fréttabréf hefur verið sent í tölvupósti til foreldra. Það má
einnig lesa
hér
19. september - Nemendur 6. bekkjar í ferð
með Húna II
Í morgun upplifðu nemendur 6. bekkjar skemmtilega ferð með Húna II.
Krakkarnir sáu hvali og ýmis önnur sjávardýr voru skoðuð. Nánar er hægt að lesa um
ferðina
hér
16. september - Upplýsingar vegna samræmdra
prófa
Í næstu viku taka nemendur 4., 7. og 10. bekkjar samræmd
könnunarpróf. Allar nánari upplýsingar vegna prófanna má finna
hér
16. september - Fótboltamót unglingadeilda
grunnskólanna
Í gær hittust unglingadeildir bæjarins í Boganum og kepptu í
fótbolta. Skemmtileg tilbreyting í skólalífinu þar sem allir bekkir
hvöttu sitt lið. Strákarnir í 8. bekk voru sigursælir að þessu sinni
og unnu alla 8. bekkinga bæjarins.
8. september - Dagur læsis
Alþjóðlegur dagur læsis var fimmtudaginn 8. september. Minnt
var á daginn með ýmsum hætti í þjóðfélaginu. Hér í skólanum var
hringt til sameiginlegrar lestrarstundar kl. 10:30 og þá settust
allir niður, bæði nemendur og starfsfólk og lásu í 20 mínútur. Það
var hægt að velja sér góðan stað til lestrar, hvort sem menn vildu
setjast niður í forstofu, á gangi, í matsal, liggja á dýnu í
íþróttasal, vera í kennslustofu eða hvar sem hugurinn bauð. Það var
gaman að sjá alla með bók eða blað í hönd og lesa, jafnvel á
leiðinni á milli staða.
7. september - Hausthátíð foreldrafélagsins
á laugardaginn
Hausthátíð foreldrafélags Oddeyrarskóla verður laugardaginn 10.
september frá kl. 11:00 - 13:00. Boðið verður upp á
andlitsmálningu
frá kl. 10:00. Skrúðganga, leikir og grillaðar pylsur. 1. bekkingar eru sérstaklega boðnir velkomnir . Hlökkum til að sjá
sem flesta.
Stjórn foreldrafélagsins.
5. september - Námskeið fyrir foreldra
barna með ofvirkni og/eða athyglisbrest
Námskeiðið er sérstaklega ætlað foreldrum barna á aldrinum 5 - 10
ára og það hefst þann 4. október n.k.
Kennarar og stjórnendur skólans aðstoða foreldra við umsóknir.
Nánari
upplýsingar má finna
hér
5. september - Reykjaferð
Í dag lögðu nemendur 7. bekkjar af stað í Reykjaferð. Þar hitta þeir
krakka frá Þelamerkurskóla og Öldutúnsskóla sem verða með þeim þessa
viku. Heimkoma er áætluð um kl. 15:00 á föstudaginn.
2. september - Tengja
Ný Tengja hefur verið send til foreldra. Hana má einnig lesa
hér
30. ágúst - Leitin að grenndargralinu.
Nemendur 8.-10. bekkjar Oddeyrarskóla taka nú í fyrsta sinn þátt í
Leitinni að grenndargralinu. Nánari upplýsingar um
þennan skemmtilega leik má finna
hér
27. ágúst - Góður andi á Eiðsvellinum á
Akureyrarvöku og sveppasalan gekk vel
Það var gaman að líta við á Eiðsvellinum í góða veðrinu á
Akureyrarvöku. Þar voru nemendur okkar og foreldrar að hreinsa
sveppi, matbúa sveppabrauð og selja þurrkaða sveppi. Brauðið var
afar ljúffengt og umbúðir þurrkuðu sveppanna vöktu athygli, enda
hafði verið lögð vinna í að hanna allt sem best.
26. ágúst - Þátttaka nemenda 10. bekkjar og
foreldra þeirra í Akureyrarvöku með sveppasölu
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir hefur að undanförnu leitt nokkra
foreldra og nemendur 10. bekkjar í sveppatínslu, hreinsun og
þurrkun. Nú er komið að því að selja smjörsteikta sveppi í rjómasósu
á Eiðsvellinum á laugardaginn kl. 14:00, með kaffi, kakói eða gosi.
Glæsilegt framtak sem við hvetjum sem flesta til að styðja við með
því að mæta á Eiðsvöllinn og kaupa sér brauðsneið. Einnig er hægt að
skoða ferska sveppi og læra að þekkja ólíkar tegundir.
25. ágúst - skemmtileg skólabyrjun
Í dag eru allir nemendur skólans í kennslu skv. stundaskrá en þetta
er fyrsti heili skóladagur 1. bekkinga. Eins og undanfarin ár er það
hlutverk 8. bekkinga að halda utan um yngstu nemendur skólans fyrstu
dagana. Það er ekki amalegt að eiga vini úr 8. bekk fyrstu
frímínúturnar og stóru krakkarnir eru fullir umhyggju gagnvart þeim
yngri.
22. ágúst - Tengja, fréttabréf
Tengja, fyrsta fréttabéf skólaársins hefur verið send til foreldra.
Hana er einnig hægt að lesa
hér
19. ágúst - Fjáröflun 10. bekkinga er hafin
með sveppatínslu og verkun
Nemendur 10. bekkjar og foreldrar þeirra byrja haustið með stæl. Þau
hafa þegar farið eina sveppatínsluferð og tóku síðan til við
hreinsun og þurrkun lerkisveppa. Afurðin verður síðan seld og
ágóðinn rennur að sjálfsögðu í ferðasjóð 10. bekkinga.
18. ágúst - gjaldskrár skólaárið 2011-2012
Undir flipanum Gjaldskrár hér til vinstri má finna gjaldskrár
fyrir mötuneyti, frístund, ávaxta-og mjólkuráskrfit.
10. ágúst - Skólasetningardagur 22. ágúst
Skólasetning verður mánudaginn 22. ágúst. Nemendur mæta í skólann
sem hér segir:
2.-4. bekkur mætir kl. 9:00
5.-7. bekkur mætir kl. 10:00
8.-10. bekkur mætir kl. 11:00
10. ágúst - Staðfesting á skráningu í
frístund
Við minnum foreldra á að staðfesta þarf skráningu í frístund með
undirskrift dvalarsamnings. Tekið verður við staðfestingum fimmtudag
11. og föstudag 12. ágúst á milli kl. 10:00 og 14:00. Þeim sem ekki
komast í skólann er bent á að hafa samband við ritara eða
umsjónarmann frístundar í síma 460-9550.
5. ágúst - Innkaup skólans fyrir nemendur
1.-4. bekkjar
Við minnum foreldra nemenda í 1.-4. bekk á tilboð skólans á
sameiginlegum innkaupum fyrir nemendur 1.-4. bekkjar. Deildarstjóri
yngri deildar sér þá um innkaup á stílabókum og möppum. Efnisgjald
er 2.000 krónur og upplýsingar um bankareikning er að finna í
innkaupalistum bekkjanna.
30. júní - Upphaf skólaárs 2011-2012
Skólasetning í haust verður mánudaginn 22. ágúst. Kennarar 1.
bekkjar munu hafa samband við foreldra eftir miðjan ágúst vegna
tímasetningar á viðtölum sem verða 22. og 23. ágúst.
30. júní
Skrifstofa Oddeyrarskóla er lokuð vegna sumarleyfa frá og með 1.
júlí til og með 5. ágúst.
22. júní - Nýtt skóladagatal
Skóladagatal fyrir næsta skólaár er komið hér inn á heimasíðuna.
Smellið á hnappinn hér vinstra megin til að skoða.
20. júní - Innkaupalistar fyrir næsta skólaár.
Komin eru drög að innkaupalistum fyrir næsta skólaár. Endilega verið
dugleg að nota það sem til er heima og merkja alla hluti.
1. bekkur
2. bekkur
3. bekkur 4.
bekkur
5. bekkur
6. bekkur
7. bekkur 8.bekkur
9. bekkur 10.
bekkur